Ég fór inn á síðuna hennar Evu Laufeyjar Kjarans, sem hægt er að finna hér, og fann þessa svaka girnilegu uppskrift af súkkulaðibitakökum, með bæði hvítu og dökku súkkulaði. Ég var auðvitað seld þegar ég las bæði hvítt og dökkt súkkulaði og þaut út í 10-11 til að kaupa svoleiðis og byrjaði strax.
![]() |
| Hráefnin |
Finnst svo gott að fylla íbúðina af bökunarilmi, það er svo heimilislegt.
En hérna er uppskriftin:
220 g hveiti
200 g smjör
2 egg
100 g haframjöl
150 g sykur
100 g púðursykur
150 g dökkt súkkulaði
100 g hvítt súkkulaði
2 tsk vanilla extract (eða vanilludropar)
1 tsk matarsódi
Maður byrjar á því að þeyta saman sykur og smjör, þar sem að ég á ekki hrærivél notaði ég töfrasprota sem virkaði ágætlega, og skellti svo eggjunum útí einu í einu.
Næst fara öll þurrefnin útí
og svo allt súkkulaðið.
![]() |
![]() |
| Svo girnilegt |
Öllu er svo skellt í ofnin í 10-12 mín.
Ég náði að bíða þangað til að kökurnar voru aðeins búnar kólna áður en ég réðst á þær. Bragðast hrikalega vel með ísskaldri mjólk. Eftir þetta get ég örugglega byrjað að læra eins og vindurinn...







nammiiii mig langar í þessar kökur!
ReplyDelete