Ég er rosalega ófrumleg þegar kemur að nestisgerð fyrir skólann þannig að yfirleitt enda ég á því að grípa með mér kókómjólk og epli. En upp á síðkastið hef ég verið að gera smoothie sem er rosalega gott og ég bjó til svona líka rosalega góðan, að mínu mati minn besti hingað til, smoothie um daginn og ákvað að deila því hérna með ykkur.
En í honum er:
1 epli (ég nota rautt)
1 epli (ég nota rautt)
Slatta af frosnu mangó
Þjár lúkur af spínati
Skvetta af ávaxtasafa (ég nota multivit sem fæst í Bónus)
Allt í blandara og svo kemur þessi rosa góði drykkur. Svo prufaði ég líka að setja engiferrót út í, það er mjög gott. Ég læt svona 2,5-3 cm af engiferrótinni, en mér finnst gott að hafa sterkt engiferbragð.

No comments:
Post a Comment