Eitt kvöldið greip mig alveg svakaleg "mönsís", ég bara varð að fá eitthvað sætt og gott á bragðið og helst óhollt. En þar sem að ég er nú að reyna að láta ekki allt eftir mér varðandi mat þá ákvað ég að búa til eitthvað sem væri hollt og gott í staðinn (og ódýrara).
Núna er ég búin að gera þetta tvisar og í seinna skiptið heppnaðist þetta miklu betur. Þá reyndar leyfði ég fjórum suðusúkkulaðibitum að fljóta með, en ég er nú bara mannleg.
Ég tók 2 epli og skar í tvennt og hreinsaði kjarnann úr þannig að lítil hola myndast í miðjunni. Næst tók ég möffinsform og lét hafra í botninn.
![]() |
Því næst er látið einn suðusúkkulaðibita ofan í holuna.
![]() |
| . |
Velt upp úr kókós, eftir á að hugsa væri sniðugra að velta fyrst uppúr kókósi og svo láta súkkulaðið.
Næst er þeim komið ofan í möffinsformið og stráð kanil yfir og aðeins meiri kókós, svo inn í ofn. Beðið í svona 10 mínutur eða þangað til kókosinn er byrjaður að brúnast aðeins.
Líta svo girnilega út, og var mjög bragðgott.
Ég allavega losaði mig við svona klukkutíma af hugsunum um súkkulaði og nammi með þessu.





No comments:
Post a Comment