Miðmisserisprófin byrjuðu í seinustu viku, við lítinn fögnuð, og halda áfram næstu þrjár vikur. Eitt próf á viku kemur sko skapinu í lag...
![]() |
| Eldhúsborðið nýtt vel |
En í gær var farið út að borða, ekki í tilefni Valentínusardags heldur bara af því að við kærustuparið langaði að tríta okkur. Ég er ekki mikill aðdáandi þessa dags eiginlega bara út af því að það er til konudagur og svo bóndadagur og mér finnst það einum degi of mikið að skella inn valentínusardeginum þarna líka.
En við fórum á Rub 23 sem er klárlega uppáhalds, hérna í Reykjavík. Ég fór rúllandi út eftir þriggja rétta máltíð og hitti svo annað kærustupar í spil og kokteila, rosa skemmtilegt kvöld. Kokteillinn sem ég fékk mér í for-forrétt (fékk mér kokteil og svo forrétt) var geggjaður. Þó svo að ég held að ég hafi skemmt mörgum þegar ég byrjaði að veiða jarðaberin upp með höndunum, svo benti betri helmingurinn mér á að það væri kannski betra að nota gaffalinn. En aðalatriðið var að ég náði öllum jarðaberjunum.
![]() |
| Góóður kokteill |
Ég ákvað nú líka að vera smá sæt og lét blóm í hárið á mér og var með bleikan varalit.



No comments:
Post a Comment